Kæru Pungsar, vinir og aðrir sem vert er að nefnast á,
til hamingju!
Því nú erum við komnir úr sumardvalanum og kominn tími til að fara að snúa sér að cyber-lífinu.
Já... þið eruð að horfa á nýtt blogg. Alveg ekta. Ég lofa.
Það er náttúrulega ekki hægt að fara að segja frá öllu sem hefur skeð síðan...já
Þannig að ég ætla bara að reyna að koma með svona highligts.
Sumarið var nú ágætt. Reyndar byrjaði það frekar illa því að það voru margir á sjó og svo framvegis, ég, Gabe og Öddi vorum náttúrulega í skólanum fram að 5. júní sem að suckaði svo mikið að ég gat ekki ímyndað mér að fara aftur í þennan skóla sem gengur undir nafninu MA. Þannig að ég er bara kominn í VMA voða svalur

En já... það kom þó ljós punktur fyrir sumarið því ég hélt smá birthday party einhverntímann þarna í maí og þar komu saman allir Pungsarnir og nýr Pungsi varð formlega boðinn velkominn í hópinn! Jább... það er hann Ólafur Natan Halldórsson, sem reyndar var búinn að vera viðloðandi okkur í nokkurn tíma en aldrei formlega viðurkenndur Pungsi. Þannig að ég greip gæsina í afmælinu og bað um kosningu. Sem náttúrulega var einróma jákvæð gagnvart Óla Danska þannig að kallinn varð bara Pungsi

Btw ég ætla að setja myndir frá þessu inn um helgina

Já þetta afmæli var mjög fínt, rosalega gaman að vera með öllum bestu vinum sínum samansöfnuðum á einum stað ásamt fullt af bjór. Sæsi reyndar stoppaði stutt, en hann allavega kom sem var bara gott. Við vorum eitthvað fram á nótt og ef ég man rétt þá var Gunni fyrstur til að verða blekaður, ældi næstum á stofuborðið heima

Þegar ég reyni að muna eitthvað frá sumrinu þá kemur þetta svo óljóst upp í hausinn á mér að ég get varla munað neitt! Uuuu já ég og Biggi skelltum okkur nú í kálfsdalinn og það var heavy gaman, urðum voða frægir

En að mínu mati var þetta svolítið slæmt sumar að því leitinu til að það vantaði svo marga!

Sævar og Gunni fyrir sunnan, Óli Danski og Siggi D alltaf á sjó og Biggi náttúrulega á sjó þarna fyrsta mánuðinn. En við vorum þó nokkrir þarna mest af sumrinu. Mér fannst þó við gera aðeins of lítið í því að fara út á kvöldin og bralla eitthvað. Djöfulsins leti!
Held ég skrifi bara það sem mér dettur í hug jafnóðum. Ég og Biggi byrjuðum í Boot Camp hvenær? Allavega búnar 5 vikur eða svo og við bara orðnir heldraslaðir og vesen maður. Tjaa allavega komnir í ágætis form

Þetta er bara gaman sko, samt svo ógeðslega erfitt stundum!
Við erum líka, fyrir þá sem ekki vita, að leigja saman með systrunum í Skálateignum á Akureyri, eiginlega bara hliðiná skólanum sem er bara sweeet. 2 min að labba í skólann eða e-h

Gekk nú ekki rosalega vel í fótboltanum í sumar... Ég spilaði nánast ekkert, sennilega var þetta svona 2 leikir samtals með mfl. og 4 leikir með varaliðinu. Sem gefur okkur hvað? 6 leiki? Á einu sumri? Whuddafuuuuck? Náttúrulega bara ömurlegt! En við Gabe tókum svo steikt atriði á lokahófinu! Við(eða ég) sungum Now You´re a Woman með DVDA og vorum alveg að verða búnir með lagið þá hvíslaði Gabríel að mér bara ,,strippaðu! strippaðu! annars vinnum við aldrei!" Hahaha og við byrjuðum að klæða okkur úr og Gauji sem var með okkur í atriðinu, geggjað steiktur, fór bara úr buxunum eins og fáviti

Þetta var bara gaman samt.
En já núna er vetrarfrí hjá okkur í VMA, frekar nice, frá fimmtudegi til mánudags

Ég er samt ekki að grínast með það hvað VMA er miklu auðveldari skóli heldur en MA, maður er að fá bara 8-9 fyrir allt hahaha

Gaaaabe og Öddi bara þarna e-h uuu og ég bara whubbydooo!
Svo má ekki gleyma að við fórum á Laufskálaréttarballið um daginn, ég, Biggi, Siggi D, Gabe, Öddi og svo var Örvar líka

Hittum hann bara allt í einu

voru nokkuð fl? Ég bara man það ekki, þetta var samt svo ótrúlega steikt, Siggi Dabbi vitleysingur var svo ótrúlega sniðugur, hann var fremst við sviðið þegar Stebbi Hilmars var að syngja e-h á fullu og Siggi segir við mig: ,,Halldór tékkaðu þetta!" og ég bara hvað ætlar hann að gera núna... og byrjar þá ekki Sigginn að rífa allar snúrur úr sambandi sem hann fann á sviðinu og allir míkrafónar bara dauðir og ekkert að gerast og það var svona 10 min pása útaf þessu

Stebbi Hilmars stóð þarna eins og fáviti bara whuuut

Svo spjölluðum ég og Biggi við Stebba þegar hann var kominn niður af sviðinu

Tær snilld en ég er að pæla í að láta þetta bara duga í bili, endilega strákar commentið á þetta ef ég er að gleyma einhverju rosalegu

Maður er svo hrikalegur þegar kemur að því að muna e-h svona, sérstaklega þegar svona langt síðan maður gerði hlutina

Takk fyrir mig.
Bless.